isss....ég er sko alveg hætt að nenna þessu

Ella var að skamma mig fyrir að
vera búin að tapa mínum innri bloggara - og ég held að hún hafi
rétt fyrir sér......hvar skyldi hann vera?
Simmi og Ingveldur komu í
heimsókn núna um helgina, gistu frá fös-sun! Það var mikið gaman,
reyndar árshátíðin skítleiðinleg og með einhverju skrítnasta
"skemmtiatriði" sem sögur fara af. Mæli sterklega með því að
skjóta árshátíðarnefndina. Regla eitt, ekki láta fólk vera að
leika sárindi og breakup á árshátíð=býður ekki að sér góðan
þokka. Regla tvö, singstar er ekki góður leikur á árshátíð,
singstar skal leika með í hópum þar sem eru 10 eða færri.
Óþolandi, óferjandi, ólýsanleg leiðindi. En í öllum þessum
leiðindum voru náttúrulega skemmtilegheit líka - þeas
Norðanmennirnir og svo auðvitað hún systir
mín og Gauji 
Óskarinn kominn og farinn, ekki neitt
yfirþyrmandi spennandi eða skemmtilegur í ár. Billy Crystal
var sárt saknað. Svaf í tæpa 2 tíma og svo þegar ég reyndi að
sofa á mánudeginu þá var ég vakin af Vottum....grrrrr var svo
pirruð að ég neitaði að taka við bækling frá þeim!
Erum búin að vera að horfa á Desperate
Housewives, búin að sjá fyrstu 15 þættina - alveg hreint
massafínir. Skemmtilega kaldhæðnir og spennandi líka!
Helv....ædol er orðið óhorfandi
þessa dagana, dómnefndin er svo svakalega ósamkvæm sjálfri sér að
það hálfa væri nóg. Einnig er spurning um að gefa henni Siggu
elskunni samheitaorðabók - þá gæti hún leitað að lýsingarorðum sem
að þýða það sama og "gegt".......t.d. sturlaður og í staðin fyrir
að gera eitthvað að sínu þá gæti hún sagt þú eignaðir þér
það. Bara svona smá ábending, annars er hún líka orðin
hrifnust af því að segja bara vá vá vá......pahhhhh
*geispmeðpirri*
úje - búið að skrifa svo mikið að ég er komin
með harðar sperrur!