Þankarykið sest á ný
* Kúla litla
Bull og vitleysa
27.12.2005 00:30:53 / dossa

Aha....svona er það!

Hóhóhó........blessuð jólin komin og farin - þau eru yndisleg en sjaldan hefur okkur hlakkað jafn mikið til að þau klárist bara :D okkur langar bara í janúar eða febrúar og fá að hitta hana kúlu okkar!

Fór til ljósu rétt fyrir jól, þá kom í ljós að hún situr enn sem fastast.  Þannig að ef kemur í ljós eftir áramót að hún sitji enn þá, þá vill ljósan meina að það þurfi að senda mig í vendingu eða ákveða keisara.  Er samt alveg róleg yfir þessu öllu, þetta kemur bara eins og þetta á að koma - svo framarlega sem að kúla er í góðum gír þá er ég/við sátt.

Erum búin að gera herbergi tilbúið og ég er voða ánægð með það - kláraði að þvo og ganga frá þvottinum núna rétt fyrir jól.  Er komin 35vikur þannig að það er farið að styttast í þetta.

Gleðileg jól til ykkar allra, þó seint sé, og gleðilegt nýtt ár!  Lof jú gæs :haha:

Ella skrifaði
Ég elska líka gæsir. Eða endur frekar.. sérstaklega á jólunum :) ..hohoho (lélegur jólabrandari)! Þessi brandari var næstum því of lélegur en ég ætla samt að láta hann fylgja með! Herbergið er samt ofurfínt. Pant leigja það út þangað til kúlan kemur!
Ella skrifaði
.. ég er "samt" óð!
Birta Rós skrifaði
Gleðilega hátíð!!!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.