.. í dag er mánudagur og ég er í helgarfríi
Helgarfrí á
mánudögum eru góð! Ég svaf eins og rotuð til hádegis
(átti mjög svo undarlegar draumfarir) og svo er ég að fara inn í
Kringlu með inneignarnótu þar sem ég fékk í jólagjöf.
Gasalega finnst mér þetta hljóma vel!
Er búin að vera að taka niður jólin hérna heima hjá mér - þó
voru skildar eftir nokkrar seríur þar sem að okkur hjúunum þótti
dimma all ískyggilega svona þegar að þær fyrstu fóru að fara niður!
Dimma - íSKYGGIlega....hehehe *snort*
Þó verð ég að segja að ég neita að pakka niður öllum könglum og
gervisnjó, það eru alveg til könglar og snjór fyrir utan jólin,
alla vega um veturinn, jú víst jú víst jú víst jú víst JÚ VÍST!
Svo að lokum vil ég óska sjálfri mér til hamingju með þetta
ótrúlega tilgangslausa blogg - ég meina common hver nennir
að lesa svona?
úje - ég sökka 