Þankarykið sest á ný
* Kúla litla
Bull og vitleysa
21.09.2006 21:58:30 / dossa

Heyrðu jájá

.....hún elsku kúla mín er sko mætt á svæðið og rúmlega það :haha:

Spurningin er bara, á maður að nenna þessu bloggveseni?  Hef ég frá einhverju að segja? Er einhver þarna úti? Hvað er í matinn?

Allt þetta og margt margt fleira í næstu bloggum!

btw, þetta smáblogg er í boði Ellu


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.02.2006 02:35:17 / dossa

Klukkuð enn á ný

issss.....ekki stundlegur friður ;) ummmmm Elísabet!

En alla vega:

Var klukkuð og þar af leiðandi:

Fernt sem að ég hef unnið við

  1. Gjaldkeri í banka
  2. Barnapössun
  3. Afgreiðsludama í bókabúð
  4. Blómaskreytir

Fjórar bíómyndir sem að ég gæti horft á aftur og aftur

  1. Forrest Gump
  2. Moulin Rouge
  3. Rocky Horror Picture Show/Hair/Jesus Christ Superstar
  4. Steel Magnolias (hún er æði)

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér finnast skemmtilegir

  1. Friends
  2. Will&Grace
  3. That 70´s Show
  4. Buffy/ Sex & the City


Fjórar bækur sem ég gæti lesið aftur og aftur

  1. Þjóð Bjarnarins mikla, Dalur hestana, Mammútaþjóðin og Seiður sléttunnar
  2. Ísfólkið (já ég er líka að tala um allar 47, ekki séns að gera upp á milli)
  3. Raija ( líka allur bókaflokkurinn, ekki bara einhver ein)
  4. Bróðir Minn Ljónshjarta (dásamleg klassík)


Fjórir staðir sem ég hef búið á

  1. Móaflöt 47 
  2. Hjallabrekka 20 
  3. Miðvangur 25
  4. Lyngmóar (eins gott að ekki var um fleiri að ræða, þetta eru allir)

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum

  1. Krít/ Egyptaland
  2. Ameríka
  3. Danmörk
  4. England

Fjórar síður sem ég fer daglega inn á

  1. www.barnanet.is/oskabarn
  2. www.barnaland.is  
  3. www.mbl.is 
  4. www.fulltafbloggsíðum.is


Fernt matarkynst sem ég held upp á

  1. KJÚKLINGUR 
  2. helst bara meiri kjúklingur
  3. hamborgarar
  4. græn epli

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:

  1. Uppi á fæðingardeild
  2. Á leiðinni á fæðingardeildina
  3. Einhvers staðar í sól og hita (samt ekki akkurat núna)
  4. Í ammmeríku (en samt ekki akkurat núna en seinna já já)

Svo á ég víst að klukka 4, sem að verða þá bara:

  1. Brynja Sif
  2. Ella sprella
  3. Birta Rós 
  4. Anna Rún

Svo ætla ég bara rétt að vona að næst þegar ég blogga
að kúla litla verði mætt á svæðið 8|8|8|8|


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 16:51:02 / dossa

úff snúningur.....

þar að segja á sólarhringnum, það er alveg sama hvað ég geri - þessi daganna sofna ég ekki fyrr en milli 5-6 á morgnanna og er samt vöknuð um 9 leytið.  Það segjir sig sjálft að þetta er ekki nægur svefn en ég bara ræð ekkert við þetta, er mikið að spá í að fá Valda til að handrota mig bara í kvöld.  Ég er búin að reyna það nokkrum sinnum að halda mér síðan alveg vakandi allan daginn en það eina sem að það hefur upp á sig er meiri þreyta.  Kúlubúanum virðist þykja þetta mjög skemmtilegt, því að um 4 leytið á nóttunni taka sig upp þvílíkar hreyfingar að annað eins hefur ekki sést - maginn bara ætlar að rifna af þessu brjálaða brölti.  Samt er þetta ótrúlega skemmtilegt þrátt fyrir að rifbeinin séu eiginlega marin eftir næturleikfimina :haha: sumir kúlubúar líkjast greinilega mömmu sinni og eiga sinn prime time á nóttunni.......hehemm!

Það sem að hefur hjálpað geðheilsunni þessar nætur mínar eru vinir mínir, þá er ég ekki að tala um ykkur elskunar heldur þessa gömlu góðu sem búa í New York - Guð blessi Brynju fyrir að burðast með þá heim fyrir mig - því að ég er að verða búin að horfa á allar 10 seríunar af FRIENDS núna undanfarnar 2 vikur, víhííí!  Er bara með tölvuna inni í herbergi við hliðina á rúminu og um leið og hroturnar hefjast hjá Valdanum þá byrja ég að horfa 8|    Því gladdi það mig mikið að sjá þessar fréttir

http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1180795

Ég vissi að þetta stæði til, en ekki að samningar væru búnir að nást - þannig að Húrra!

Svona í lokin þá verð ég að hlæja pínulítið að henni Mariah Carey - hún er víst að gefa út ilmvatn eða eitthvað svolleiðis, eins og svo sem allar hinar pæjunar í Hollywood.  Nema hvað að það er komin auglýsing með henni, sko nú vitum við öll að það er fiktað í öllum mundum í fótósjopp en öllu má nú ofgera :haha:

http://www.boomspeed.com/allhailme/011906_mariahwishes.jpg

***eitthvað bilað hjá blogginu, ekki hægt að setja inn
linka eða myndir - fúllt***


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 23:56:03 / dossa

Bloggleikur -

settur inn eftir skipun frá Betu minni - hvað er maður að koma sér í :haha:

Kommentaðu nafnið þitt og ...

1) Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.

2) Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.

3) Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.

4) Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína um þig.

5) Ég segi þér hvaða dýr þú minnir mig á.

6) Og ég spyr þig að einhverju sem ég hef lengi velt fyrir mér um þig.

7) Ef þú skrifar nafnið þitt verðurðu að setja þetta inná bloggið þitt, ef þú átt eitthvað blogg !!

úúúú, gaman, gaman0


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.01.2006 02:48:48 / dossa

2006 - ár hinna miklu væntinga.....

ójá - í hugum okkar Valda þá var árið 2005 árið sem gekk undir móttóinu "This will be our year (took a long time to come)" og með því vitnuðum við í teksta með uppáhaldshljómsveitinni okkar beggja - Beautiful South.

Okkur til mikillar gleði og blessunar þá gekk það svo eftir!  Erfiðleikar dundu svo sannarlega á, bæði á okkur, vini og fjölskyldu.  Sumir unnu sigra meðan aðrir urðu að lúta lægra haldi (en þó sem sigurvegarar og hetjur) og þegar að myrkrið var sem mest þá voru þó alltaf ljósgeislar sem að náðu að vinna sig í gegnum það.

Við sjálf fengum svo margt sem að við getum verið þakklát fyrir - fyrst ákváðum við að gifta okkur, með svona frekar stuttum fyrirvara.  Síðan í miðjum klíðum við að undirbúa brúðkaupið fengum við það staðfest að kúla litla væri væntanleg.  Sú gleðistund verður seint toppuð!  Síðan þá hafa dagarnir flogið áfram - brúðkaupið var að sjálfsögðu yndislegur dagur - fullur af hamingju og ást!

Núna er komið 2006 - árið sem að við eignumst litlu manneskjuna okkar!  Hún er núna búin að vera inni í maganum á mér í næstum 37 vikur og er greinilega farin að kvarta undar plássleysi (þrátt fyrir stærð magans 8| ).  Það vekur hreinlega furðu að maður sé ekki sjálfur blár og marinn á maganum miðað við gauraganginn sem á sér stað.  Sónarinn sem við fórum í seinustu viku sagði að sú stutta væri um 3kg þannig að hún er bara í góðum holdum og samkvæmt þessum sama sónar þá er svo sannarlega enn um stelpu að ræða - þannig að sú stutta á föt til skiptanna, annars verður þetta bara sérlega Metro-ungur-maður, sem að hikar ekkert við það að nota bleikt!

Ég óska ykkur öllum elskunnar mínar, ástar- hamingju- og að allar óskir rætist á árinu 2006.  Framundan er margt að hlakka til, fæðingar og brúðkaup, sem og bara aðrir hversdagslegri hlutir sem að fylla mann líka af gleði.  Þetta var mitt lengsta og mesta væminsblogg í lengri tíma - og ef þið viljið kvarta þá kenni ég kúlunni um - maður er svo klikk svona bomm. 

Að lokum teksti seinasta árs sem má halda áfram yfir í það nýja:

The warmth of your love's
Like the warmth from the sun
And this will be our year
Took a long time to come...

Don't let go of my hand
Now the darkness has gone
This will be our year
Took a long time to come...

And I won't forget
The way you helped me up when I was down
And I won't forget
The way you said "darling, I love you"
You gave me faith to go on
Now we're there
And we've only just begun
This will be our year
Took a long time to come...

The warmth of your smile
Smile for me, little one
And this will be our year
Took a long time to come...

You don't have to worry
All your worried days are gone
This will be our year
Took a long time to come...

And I won't forget
The way you helped me up when I was down
And I won't forget
The way you said "darling, I love you"
You gave me faith to go on
Now we're there
We've only just begun
This will be our year
Took a long time to come...

And this will be our year
Took a long time to come...


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.12.2005 00:30:53 / dossa

Aha....svona er það!

Hóhóhó........blessuð jólin komin og farin - þau eru yndisleg en sjaldan hefur okkur hlakkað jafn mikið til að þau klárist bara :D okkur langar bara í janúar eða febrúar og fá að hitta hana kúlu okkar!

Fór til ljósu rétt fyrir jól, þá kom í ljós að hún situr enn sem fastast.  Þannig að ef kemur í ljós eftir áramót að hún sitji enn þá, þá vill ljósan meina að það þurfi að senda mig í vendingu eða ákveða keisara.  Er samt alveg róleg yfir þessu öllu, þetta kemur bara eins og þetta á að koma - svo framarlega sem að kúla er í góðum gír þá er ég/við sátt.

Erum búin að gera herbergi tilbúið og ég er voða ánægð með það - kláraði að þvo og ganga frá þvottinum núna rétt fyrir jól.  Er komin 35vikur þannig að það er farið að styttast í þetta.

Gleðileg jól til ykkar allra, þó seint sé, og gleðilegt nýtt ár!  Lof jú gæs :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 15:50:10 / dossa

akkuru, akkuru

akkuru tekur allt svona langan tíma - ha?  Foj ég er svo óþolinmóð að það fer alveg með mig þegar að hlutirnir gerast í rauntíma en ekki á mínumtíma (sem er by the way mikið betri) 8|  Sko nú er komin vika síðan að kallarnir komu hingað og gerðu gat á húsið mitt og settu í glugga (okey, gott mál) reyndar átti glugginn að vera komin í byrjun október en það er víst ekki á allt kosið.  Svo þegar að glugginn er kominn í þá þarf að múra í kringum hann og ganga frá - eeeeeeeen múrarinn sem að ætlaði að koma á sunnudag kom ekkert fyrr en í gær, þriðjudag, og ekki gat hann klárað þetta í einni lotu - nei nei nei!  En ætlar hann að koma í kvöld - nei nei nei - sennilegast ekki fyrr en á morgun :klikk:  mar getur nú misst sig af minna tilefni, stormandi um íbúðina fulla af dóti (sem á að vera inni í herberginu) og verandi sjálf full af hormónumRass segji ég bara, já Rass!!

Svo er hann Valdi minn svo slakur yfir þessu öllu, esssssskan mín þetta kemur allt saman! KEMUR ALLT SAMAN??? - fnusss, þetta átti að vera löngu komið!  Fnæs!

Jæja svo er ég hætt að rífast yfir þessu, þó má segja að þetta pirri mig SVOLÍTIÐ mikið sko, enda ætlaði ég að gera til barnaherbergi og svo átti að fara að þvo öll barnafötin ofan í skúffurnar.  Þetta gerist ekki fyrr en hægt er að mála og klára að ganga frá herberginu (hey.....ég er ekki hætt að rífast yfir þessu).  Æji, það er nú ekki oft um ævina sem að ég hef óskað þess að vera múrari, en það væri allt í lagi mín vegna núna :haha:

úje - þetta var úthreinsun :haha::haha::haha: 

p.s. ho ho holy crap ég er samt búin að jólaskreyta!


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.11.2005 17:34:09 / dossa

Bæli, borun og bloggleti

sko.... ég er ekki góður bloggari, ég nenni sjaldnast að blogga. Ég skil það núna hvers vegna ég alveg fullt af dagbókum frá því að ég var beibí sem að byrja á "Kæra Dagbók" og svo kemur næsta færsla 2 árum síðar.  Þetta er bloggleti.

Reynum samt, það kom maður hérna í morgun og boraði gat á húsið mitt - jamm, alveg í gegnum vegginn þannig að ég get kíkt út um það og fengið vind í augað, það er nú einmitt eitt af lífstakmörkunum mínum svo ég krossa það útÞetta er borun!  Það er sem sé verið að gera glugga á gaflinn hjá okkur, þar sem að áður var gestaherbergi og verður herbergið hennar Kúlu litlu (eða Gullbrár Bleikfótar, eins og systir mín kallar hana).  Það voru nefnilega yfirbyggðar hjá okkur svalirnar og þess vegna er glugginn úr núverandi gestaherbergi orðinn gagnslaus og því er brugðið á þetta ráð.  Þetta er hellings dæmi í kringum þetta og verður voða gaman þegar þessu er lokið.  Þá er stefnan að fara í að gera barnaherbergið nokkurn vegin tilbúið, enn og aftur er það eins gott að sónarinn stemmi því að annars sefur litli guttinn í bleiku herbergi. :haha: 

Ég fékk sko símtal í gær um að við yrðum að drífa okkur að tæma herbergið, það áttu að gefa okkur nokkra daga, en neibbs ég fékk 2 tíma fyrirvara.  Ég dreif mig heim og tók út úr því dóterí - en var að spá með skápinn (vildi ekki hafa hann þarna svo það kæmi ekki ryk hann) en vissi að Valdi yrði brál ef kúlukonan færi að ýta honum sjálf.  Að sjálfsögðu fór ég því að ýta honum sjálf og viti menn, náði aðeins að bráka skápaulann - þetta bregst ekki, alltaf ALLTAF þegar ég geri eitthvað af mér, eitthvað sem ég á ekki að vera að gera, þá kemur eitthvað fyrir 8| það er alveg ótrúlegt, kemst aldrei upp með neitt.  Það er kannski ástæðan fyrir því að ég er svona þæg og góð almennt, yes yes :klikk:

Svo fékk ég símtal áðan frá henni yndislegu tengdamömmu minni að ég ætti von á draumabarnarúminu mínu í skúrinn hjá okkur á morgun (víííííííí) en við vorum búin að velja og það og svo erum við svo heppin að eiga svona góða að.  Hlakka svo til að gera herbergið í stand.  Það eina er að núna þarf að finna einhverja lausn fyrir herra Raphael sem að hefur alltaf staðið í þeirri trú að hann eigi gestaherbergið og rúmið þar, eins gott að redda honum einhverju sniðugu í staðinn.  Þetta eru bælin :)

úje- sko ég hafði eitthvað smá að segja :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.11.2005 15:15:21 / dossa

Jiiiiii - hva ég er dúlegur bloggari :)

Er bara alltaf að blogga og skrifa í hverri færslu eitthvað djúpt og innihaldsríkt.  Yndislegt!  Fór í jógað í seinustu viku, jamm fór í einn tíma og hætti 8|  Þegar að kennarinn fór að segja okkur að í fæðingu opnuðumst við eins og blóm, eins og fallegt mjúkt blóm - þó átti ég erfitt með að segja ekki hátt og sjallt: Pahhh!  Miðað við hvað hún Guðrún systir mín sagði mér, um hvað ég ætti að biðja ljósmóðurina að þrýsta á (sumir þekkja þessa sögu) þá held ég að blómailmur og mjúkleiki verði ekki ofarlega í huga :haha:

Fannst samt gaman í æfingunum sjálfum, það var ekkert mál en svona þetta: Ómmmm, ómmm og svo Mmmmmm, Mmmm sem er mjúkt eins og móðir var ekki alveg að hreyfa við mér.  Sá áttum við að leggjast niður í slökun og kennarinn sveif á milli okkar og úðaði einhverju róandi yfir okkur - ójá, róandi úði og að lokum sungum við allar saman um ljósið sem skín innra með okkur öllum.  Lifi ljósið, lifi ljósið hér og lýsi mér - hey....þetta er úr Hárinu!  Það hefði verið skárra, þá hefði ég kunnað textana.

Annars líður mér bara mjög vel í minni óléttu, kann ágætleg við þetta allt saman - líður að vísu eins og 2ja tonna trukk þegar ég er komin í úlpu og svona, en það er víst partur af prógramminu.  Náði mér í þessa kvefpest sem er að ganga núna og er alveg skítlasin hérna heima :$  finnst það verst af öllu að ég ætlaði SVO að vera að hjálpa henni Betu minni núna, FYRIRGEFÐU elsku Beta mín!!! :(

Jæja - ætla að leggjast niður og fá mér meira te!

úje - gaman að snýta sér!


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 14:32:18 / dossa

Klukkuð - klikkuð!

1. Ég verð alltaf að hafa græjunar í bílnum stilltar á jafna tölu, má alls ekki vera á oddatölu. Ég veit svona eru allir :$

2. Mér leiðast svona japanskar teiknimyndir, þar sem að munnurinn hreyfist svona freaky - eins og voru hérna oft í "gamla daga".

3.  Mér líður rosalega vel á nóttinni - þegar að allir er sofandi, bara að vaka og gera ekkert sérstakt, lesa eða horfa á góða mynd.

4.  Mig langar að eignast marga hunda, elska hann Raffa minn útaf lífinu - og sakna ennþá Monsa (hundsins sem ég átti frá því að ég var 3ja ára til 18ára)  :(

5.  Ég er rosalega feiminn í mér, reyni samt að sýna það ekkin - og þegar ég verð stressuð og feimin og er að fara eitthvað, t.d. labba upp á svið eða fyrir framan fólk þá tel ég skrefin :^) ég veit - er mjööööög skrítin!


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 01:18:00 / dossa

ójá - ég á örugglega íslandsmetið í bloggi!

Ýmislegt hefur gerst frá því að ég bloggaði síðast - yes yes!

Til dæmis giftum við hjúin okkur núna í sumar - það var alveg yndislegur dagur!  Allt gekk upp, nema kannski aðeins meiri rigning en við skráum okkur á.  En hey maður deilir ekki við gjafmildi guðanna.  Síðan komumst við að því 1.júní að ég væri ófrísk, þrátt fyrir að brúðkaupsdagurinn hafi verið frábær þá held ég að sá dagur toppi alla aðra - það var ótrúlega mikil hamingja :haha: 

Við tilkynntum síðan um leynigestinn í brúðkaupinu því að þá var ég komin 12 vikur, en í dag er ég komin næstum 22 vikur - rúmlega hálfnuð.  Fengum að vita það fyrir nokkrum vikum að kúla litla væri í raun kúla litla - sem sé lítil stelpa (sú 6 í röðinni hjá mömmu og pabba) :haha:

Við fórum síðan til Ammeríku, Boston nánara tiltekið - og vorum þar í 6daga.  Það verður að viðurkennast að það var aðeins kíkt í búðir og að visakortið skelfur enn í veskinu, fráhvarfseinkenni og innkaupaþynnka.  Við erum samt hress með þetta allt saman.  Nú ef kúla litla hefur verið að stríða okkur og er í raun kúli litli, þá bara verður hann að vera í bleikum kjólum fyrsta árið :D hey þeir eru alla vega mjög sætir.

Læt þetta duga í bili, komin með ritskjálfta - enda ekki notað þetta svo lengi!

Gaman að vita hvort að það sé einhver sem að kíkjir enn hingað inn!

Yfir og út

kv. Kúlukellan


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.03.2005 00:06:48 / dossa

blogg smogg

isss....ég er sko alveg hætt að nenna þessu 8|

Ella var að skamma mig fyrir að vera búin að tapa mínum innri bloggara - og ég held að hún hafi rétt fyrir sér......hvar skyldi hann vera?

Simmi og Ingveldur komu í heimsókn núna um helgina, gistu frá fös-sun! Það var mikið gaman, reyndar árshátíðin skítleiðinleg og með einhverju skrítnasta "skemmtiatriði" sem sögur fara af.  Mæli sterklega með því að skjóta árshátíðarnefndina.  Regla eitt, ekki láta fólk vera að leika sárindi og breakup á árshátíð=býður ekki að sér góðan þokka.  Regla tvö, singstar er ekki góður leikur á árshátíð, singstar skal leika með í hópum þar sem eru 10 eða færri.  Óþolandi, óferjandi, ólýsanleg leiðindi.  En í öllum þessum leiðindum voru náttúrulega skemmtilegheit líka - þeas Norðanmennirnir og svo auðvitað hún systir mín og Gauji :haha:

Óskarinn kominn og farinn, ekki neitt yfirþyrmandi spennandi eða skemmtilegur í ár.  Billy Crystal var sárt saknað.  Svaf í tæpa 2 tíma og svo þegar ég reyndi að sofa á mánudeginu þá var ég vakin af Vottum....grrrrr var svo pirruð að ég neitaði að taka við bækling frá þeim!

Erum búin að vera að horfa á Desperate Housewives, búin að sjá fyrstu 15 þættina - alveg hreint massafínir.  Skemmtilega kaldhæðnir og spennandi líka!

Helv....ædol er orðið óhorfandi þessa dagana, dómnefndin er svo svakalega ósamkvæm sjálfri sér að það hálfa væri nóg.  Einnig er spurning um að gefa henni Siggu elskunni samheitaorðabók - þá gæti hún leitað að lýsingarorðum sem að þýða það sama og "gegt".......t.d. sturlaður og í staðin fyrir að gera eitthvað að sínu þá gæti hún sagt þú eignaðir þér það.  Bara svona smá ábending, annars er hún líka orðin hrifnust af því að segja bara vá vá vá......pahhhhh *geispmeðpirri*

úje - búið að skrifa svo mikið að ég er komin með harðar sperrur!


» 102 hafa sagt sína skoðun

07.02.2005 00:18:18 / dossa

valdimar, valdimar - wherefor art thou Valdimar.....

æji já - nú er hann Valdi minn í Danaveldi og ég og Raffraff erum home alone.  Iss það er bara ekkert gaman sko.  Sérstaklega ekki þar sem að ég er ansi "veik" þessa dagana út af þessum lyfjum sem ég er á (nei þetta eru ekki geðlyf ;) ).  Alla vega finn ég svakalega fyrir því hvað ég sakna hans - jafvel þó að hann hafi bara farið í morgun.  Raffinn er eins leiður og ég - í hvert sinn og bíll keyrir að húsinu eða að einhver kemur inn þá hleypur hann að glugganum eða sperrist allur upp - grey vúffinn.

Valdi hringdi í kvöld og hafði farið út að borða með liðinu í kvöld, og fyrir valinu varð víst Ástralskur veitingastaður (sem var fyrirfram ákveðinn) og þar snæddu þeir krókódíl í forrétt og í aðalrétt var kengúra 8| ..................... og þetta át hann!  Ég verð að setja þetta í rétt samhengi, þetta er maður sem að borðar ekki kartöflur, sveppi, bláber eða vínber - ég segji nú bara að héðan í  frá verða engar afsakanir teknar gildar - hann verður látin éta allt saman, og ef það koma kvartanir - þá segji ég bara: hva...viltu frekar krókódíl eða kengúru? :haha:

úje - ég sakna þín Valdi minn og tré!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.01.2005 00:40:41 / dossa

Golden Globe 2005.....

jamm....það er komið nýtt ár og með nýju ári koma nýjar verðlaunaafhendingar í Hollywood!  Núna er t.d. Golden Globe.  Þetta finnst mér gaman :haha:

 Þetta hefur fylgt mér alveg frá því að ég var krakki, alltaf fannst mér æði að fylgjast með þessum hátíðum þegar að ég var yngri - bara ég ein, enginn úr familíunni var með nokkurn áhuga! I´ve always been the odd duck.  Svona var þetta líka á föstudagskvöldum - sumir muna kannski að á föstudögum, frekar seint, voru oft söngvamyndir - með Marilyn Monroe, Judy Garland og fleiri yndisgyðjum, allir stukku inn í rúm í svefn - nema Dossa litla, hún fékk að vaka frameftir og starði á imbann.  Hurrmfffpp......þetta er kannski eitthvað sem að fólk ætti að forðast ef það vill losna við að börnin þeirra verði eins og ég :$

Rosalega eru samt margar myndir sem að mér langar til að sjá núna:  Finding Neverland, Alfie, Phantom of the Opera, Closer, Series of Unfortunate Events, Bewitched, Sideways og fleiri og fleiri.

Núna er ég líka að vonast til þess að Will og Grace taki heim svoldið af verðlaunum - löngu kominn tími til þess!  Þó reyndar vill maður að Sarah Jessica Parker fái sín seinustu verðlaun fyrir Sex and the City - humm erfitt :haha:

úje - má ekki vera að þessu núna - margir fínir kjólar! Skrifa meir seinna:lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2005 13:37:43 / dossa

víhí..

.. í dag er mánudagur og ég er í helgarfríi :lol: Helgarfrí á mánudögum eru góð!  Ég svaf eins og rotuð til hádegis (átti mjög svo undarlegar draumfarir) og svo er ég að fara inn í Kringlu með inneignarnótu þar sem ég fékk í jólagjöf.  Gasalega finnst mér þetta hljóma vel!

Er búin að vera að taka niður jólin hérna heima hjá mér - þó voru skildar eftir nokkrar seríur þar sem að okkur hjúunum þótti dimma all ískyggilega svona þegar að þær fyrstu fóru að fara niður! Dimma - íSKYGGIlega....hehehe *snort*

Þó verð ég að segja að ég neita að pakka niður öllum könglum og gervisnjó, það eru alveg til könglar og snjór fyrir utan jólin, alla vega um veturinn, jú víst jú víst jú víst jú víst JÚ VÍST!

Svo að lokum vil ég óska sjálfri mér til hamingju með þetta ótrúlega tilgangslausa blogg - ég meina common hver nennir að lesa svona?

úje - ég sökka :!:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3